Gott en fámennt Íslandsmót
Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum var haldið á Akureyri síðastliðna helgi. Hestamannafélagið Léttir sá um mótið og var það haldið á nýjum velli félagsins í Lögmannshlíðarhverfi. Splunkuný reiðhöll er við enda vallarins og nýttist hún vel við mótshaldið. Framkvæmd mótsins tókst í meginatriðum vel. Mótssvæðið lofar góðu og verður vafalítið eitt það besta á landinu þegar svæðið verður gróið. Töluvert vantaði upp á það núna. En veðrið var hagstætt þannig að hestamenn sluppu við moldrok í þetta skiptið. Áhorfendur voru hins vegar fáir, eins og oftast á Íslandsmótum fullorðinna, og er það vissulega umhugsunarefni.
Nánar er fjallað um Íslandsmótið í mánaðarritinu Hestar og hestamenn sem fylgir Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið blaðið á vefnum. Hægt að óska eftir lykilorði og áskrift á vefnum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH