Landsbankamót II
Annað Landsbankamót vetrarins verður haldið á morgun, laugardaginn 15. mars. Hefst það stundvíslega kl. 11.00 að Sörlastöðum í Hafnarfirði. Mótin eru opin öllum skuldlausum félagsmönnum Sörla.
Að beiðni yfirþjálfara og reiðkennara var óskað eftir því að flokkar unglinga og ungmenna myndu ekki skarast á við keppnisnámskeið sem þau eru á. Mótanefndin tók að sjálfsögðu vel í þá beiðni og því dagskráin með aðeins breyttu sniði frá því síðast.
Keppnisflokkar og áætluð dagskrá:
Aætl. tími
11:00 – 11:30 Skeið
11:30 – 11:45 Börn
11:45 – 12:00 3 flokkur
12:00 – 12:15 2 flokkur
Hádegishlé
13:30 – 13.45 Pollar / Pollar teymdir
13.45 – 14:00 Unglingar
14:00 – 14:15 Ungmenni
14:15 – 14:30 50+
14:30 – 14:45 1 flokkur
14:45 – 15:00 Opinn flokkur
15:00 lok
Athugið að aðeins eru um áætlaðan tíma og mikilvægt fyrir keppendur að fylgjast vel með og vera tilbúinn þegar flokkurinn á undan er í braut. Við verðlaunaafhendingu flokksins á undan eiga keppendur næsta flokk á eftir að vera komnir á brautarendann alveg klárir í slaginn.
Vegna fjölda áskorana höfum við ákveðið að keppendur í ungmenna- og fullorðinsflokkum mega skrá annan hest í opinn flokk auk þess að keppa í sínum flokk en keppendur geta einungis safnað stigum í einum flokk.
Keppt er í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms. Keppt er annars vegar í hægu tölti og hins vegar frjálsri ferð á tölti (fegurðartölti), eftir fyrirmælum þular. Ef keppendur eru 20 eða færri skráðir í flokk skipar dómari 5 efstu hesta í sæti. Séu keppendur 21 eða fleiri skráðir í flokk velur dómari 10 efstu hesta sem ríða úrslit. Að þeim loknum velur dómari 5 efstu hesta í sæti.
Auk þessa er keppt í 100 m. skeiði. Riðnir tveir sprettir og gildir besti tíminn úr öðrum hvorum sprettinum.
Skráning:
Skráningargjald er það sama og í fyrra kr. 2000 fyrir alla flokka nema polla og skeið sem er kr.1500 krónur.
ATH. SKRÁNING FER EINGÖNGU FRAM Á WWW.SKRANING.IS. EKKI VERÐUR TEKIÐ VIÐ SKRÁNINGUM Á ANNAN HÁTT. SKRÁNINGU LÝKUR í KVÖLD Á MIÐNÆTTI.
Öllum fyrirspurnum um skráningu skal beint á tölvupóstfangið motanefndsorla(hjá)gmail.com.
Keppendur athugið: Keppnisnúmer eru afhent í dómpalli laugardaginn 15. feb. milli kl: 10-10.30 fyrir flokka sem eru fyrir hádegi og svo aftur milli 12-12.30 fyrir flokka sem eru eftir hádegi.
Biðjum við keppendur vinsamlega að virða þessa tíma þ.s. starfsmenn í dómpalli mega ekki verða fyrir truflun á meðan á keppni stendur.
Styttu haustið með EiðfaxaTV