Æskulýðsstarf Þjálfa
Það er ýmislegt á döfinni hjá okkur í æskulýðsstarfi hestamannafélagsins ÞJÁLFA.
Laugardagskvöldið 30. janúar: Einn þekktasti knapi landsins:
Laugardagskvöldið 30. janúar n.k. verður Mette Manseth með fyrirlestur og sýnikennslu í reiðhöllinni Torfunesi kl. 19:00 – 20:00. Allir áhugasamir eru velkomnir, þátttökugjald aðeins 1000 kr. Komum saman og höfum gagn og gaman af. Mette kemur til með að halda fleiri fyrirlestra og/eða sýnikennslu í Torfunesi í vetur, ef viðtökur verða góðar.
Sunnudaginn 31. janúar: “Baldvin býður heim”
Baldvin býður í reiðhöllina í Torfunesi frá kl. 13:00 – 16:00. Allir hestaáhugamenn eru hvattir til að mæta, með fjölskylduna og kynnast þessari frábæru aðstöðu, notkunarmöguleikunum og starfsseminni sem þar fer fram. Æskulýðsfélagið mun einnig
kynna fyrirhugað starf félagsins; námsskeið, opna daga, hesthúsheimsóknir o.fl.. Við þyggjum góðar ábendingar og hugmyndir um félagsstarfið frá sem flestum. Eigum góðan eftirmiðdag saman í reiðhöllinni í Torfunesi, öllum að kostnaðarlausu. Kaffi, kakó og ”með-ðíí”…
13. og 14. febrúar: – Reiðnámsskeið:
Helgina 13. og 14. febrúar verður hún Anna Rebecka með reiðnámsskeið í Torfunesi. Æskulýðsfélag Þjálfa mun greiða niður
kostnaðinn að hluta, fyrir félagsmenn, en námsskeiðið er ætlað börnum/unglingum eldri en 12 ára þ.e.a.s. fyrir þau sem eru lengra komin, – námsskeið fyrir yngri félaga, auglýst síðar, (hafið samband við gjaldkera æskulýðsfélagsins vegna upphæðar niðurgreiðslunnar s. 4643707). Nánari upplýsingar um námsskeiðið og skráning á netfangið [email protected] (s. 8632922)
Skráið ykkur strax, – fyrstur kemur, – fyrstur fær….!!!
Laugardagur 20. febrúar: – Reiðhallardagur:
Takið daginn frá !!! Æskulýðsstarf Þjálfa skipuleggur fyrir félagsmenn ”opinn dag” í reiðhöllinni Torfunesi, kl. 10:00 – 16:00.
Mætum með börnunum og leyfum þeim að kynnast hestamennskunni enn betur. Við leiðbeinum og aðstoðum hvort annað. Komið endilega líka með hestinn ykkar og nýtið reiðhöllina á meðan á heimsókninni stendur (látið Baldvin bara vita ef hross verður meðferðis, svo hægt sé að hafa pláss í stíum yfir daginn).
Gunnar Óli/Viðbót og Bryndís/Gistiþjónustan Staðarhóli bjóða uppá kraftmikla kjötsúpu í hádeginu …..
Nánari starfssemi æskulýðsfélagsins auglýst síðar. En fylgist líka endilega með á ”Facebook” síðunni ”Æskulýðsstarf Þjálfa” – og gerist vinir. Þar verða uppfærðar upplýsingar reglulega.
Athugið: Það eru engin félagsgjöld í Þjálfa fyrir börn 15 ára og yngri, svo endilega skráið ykkur í Þjálfa, ef þið hafið áhuga, því þannig eruð þið sjálfkrafa í æskulýðsfélaginu.
Stjórnin
Margareterhof er selt
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Dagur með hestatannlækni