Raunfærnimat á hestabraut

  • 25. nóvember 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Vilt þú fá reynslu þína metna?

„Raunfærnimat úr atvinnulífinu er raunhæfur kostur fyrir hestamenn sem unnið hafa í greininni í 5 ár eða lengur og hafa náð 23 ára aldri.

Hvað er raunfærnimat ?

Raunfærnimat er það ferli þegar lagt er mat á þekkingu og kunnáttu sem aflað er út í atvinnulífinu. Margir einstaklingar hafa ómælda reynslu af störfum sem þeir hafa unnið við lengi eins og t.d. margir hestamenn. Matið er leið til þess að votta þekkingu þeirra út frá ákveðnum viðmiðum. Í þessu verkefni eru viðmiðin hestabraut Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Hver er ávinningur þátttakenda?

Þeir fá vottun á kunnáttu sem að þeir hafa öðlast í atvinnulífinu og þar með þekkingu sína metna til framhaldsskólaeininga. Einingarnar geta nýst í áframhaldandi þekkingarleit en þátttakendur stjórna því sjálfir hvað þeir gera í þeim efnum. Stefnt er að frekara starfsnámi í greininni þar sem þátttakendur í raunfærnimati hafa forskot.

Raunfærnimat á hestabraut

Lagt er upp með mat í annað sinn hjá Fræðslunetinu-símenntun á Suðurlandi en í fyrra tóku 17 einstaklingar þátt í matinu með mjög góðum árangri en alls voru 593 einingar staðnar. Þátttakendur komu víða að en þó flestur af Suðurlandi og suðvesturhorninu. Allir sem hafa a.m.k. 5 ára reynslu í greininni koma til greina sem væntanlegir þátttakendur. Áhugasamir hafi samband við verkefnisstjóra Sólveigu R. Kristinsdóttur í síma 560-2030eða senda póst á [email protected].“

Með góðri kveðju,
Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir, verkefnastjóri
Fræðslunetið – símenntun á Suðurlandi
Sími 560 2030 | 560 2038 | 852 2155
Vallarbraut 16, 860 Hvolsvöllur
Fjölheimum, Tryggvagötu 13, 800 Selfoss

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link