Hraustarar kjósa nýja stjórn

  • 18. nóvember 2015
  • Fréttir
Aðalfundur Hraust, Hrossaræktarsamtaka Austurlands.

Aðalfundur Hraust, Hrossaræktarsamtaka Austurlands fór fram á þriðjudagskvöldið 18. nóvember. Þar voru málefni samtakanna rædd á breiðum grundvelli ásamt venjulegum aðalfundarstörfum. Kosin var nýr formaður samtakanna Einar Ben Þorsteinsson úr Stormi, auk þess sem kjörin voru ný í stjórn Sigurbjörn Marinósson frá Reyðarfirði, Bergur Már Hallgrímsson frá Egilsstöðum og Sonja Krebs á Eiríksstöðum. Einn stjórnarmaður situr áfram en það er Ragnar Magnússon á Skriðufelli.

Fráfarandi formaður Jósef Valgarð Þorvaldsson af Víðivöllum Fremri óskaði ekki eftir áframhaldandi formennsku. Einnig óskuðu Jónas Hallgrímsson á Úlfsstöðum og Pétur Behrens úr Finnstaðaholti eftir því að aðrir yrðu kjörnir í þeirra stað. Ný stjórn þakkar þeim hjartanlega fyrir ötult starf þeirra í þágu samtakanna í fjölda ára. Skv. samþykktum átti Pétur Behrens að starfa eitt ár enn í stjórn, en hann óskaði eftir lausn frá störfum af persónulegum ástæðum. Fyrsti varamaður tók því hans sæti.

Framundan hjá stjórninni er að fara yfir stóðhestamál næsta sumars, hugsanlega viðburði og fræðslustarf. Allar ábendingar eru vel þegnar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link