Hollur hafragrautur eða dýrðleg humarsúpa
Á Landsþingi LH hélt Gunnar Steinn Pálsson eftirtekavert erindi. Gunnar ritar grein í 7. tbl. Eiðfaxa sem varpar skýru ljósi á innihald þess, en greinin nefndist „Blasir hægt andlát við hestamennskunni?“
Þar segir m.a.
„Á milli manns og hests myndast gagnkvæmt traust, vinátta og virðing sem jafnvel getur gert það að helgri stund að sitja í hesthúsinu og gera ekki annað en að hlusta á vini sína éta. Það skrýtna er að flestir þessara vina okkar urðu afgangs. Þeir lentu kannski ekki í „ruslflokki” miðað við ræktunarmarkmiðin en urðu svona meira eins og hollur hafragrautur í samanburði við dýrðlega humarsúpuna. Og ég ætla ekki að gera lítið úr því að allir hrossaræktendur eigi sér draum um að koma á legg einstökum afrekshrossum – og selja þau dýrt, enda miklu til kostað. En hvað þá með öll hin hrossin sem ekki uppfylla háleitustu draumana um óaðfinnanlegt atgervi? Hvað um þessi 49 af hverjum 50 sem ekki „dúxa” á prófinu? Eru þau í raun ekki afgangur? Fín í meðaljóninn, börnin, fjölskylduna, konuna og alla þá sem ekki kaupa sér reiðhross fyrir milljónir eða treysta sér ekki á bak grimmsterkum „sýningargörpunum” þegar á hólminn er komið?“
Grein sem engin hestamaður má láta fram hjá sér fara.
Áskrifendur Eiðfaxa geta nálgast sjöunda tölublaðið í vefútgáfunni hér.
Þeir áskrifendur sem hafa ekki enn opnað fyrir sinn aðgang að rafræna blaðinu geta gert það hér.
Þegar skráningu er lokið eru áskrifendur beðnir um að senda notendanafnið á netfangið [email protected]. Þá munum við opna fyrir aðgang að vefútgáfunni.
Hægt er að gerast áskrifandi að í Eiðfaxa í gegnum síma 588-2525 eða rafrænt hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH