Ný reiðhöll á Kjóavöllum
Eins og fram kom í umfjöllun um sameinað félag Andvara og Gusts í nýjasta tölublaði Hestablaðsins, þá er í farvatninu að byggja nýja 4000 fermetra reiðhöll á Kjóavöllum með 35×70 metra reiðgólfi. Verkið var boðið út og fimm buðu í. Lægsta boð átti Jáverk á Selfossi og næstlægsta Eykt í Reykjavík. Sveinbjörn Sveinbjörnsson, formaður Hestamannafélagsins Kjóavöllum, segir að fljótlega verði hafnar samningaviðræður við Jáverk, og síðan aðra ef samningar ekki nást. Þess má geta til gamans að hjá Jáverk starfar fjöldi hestamanna. Forstjóri er Gylfi Gíslason frá Kjarnholtum, en þekktasti starfsmaðurinn er líklega Jón Albert Sigurbjörnsson, fyrrverandi formaður LH.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH