Miðasala á Uppskeruhátíð
Uppskeruhátíð verður haldin á Broadway 10. nóvember. Miðasala hófst síðastliðinn mánudag. Aðeins er hægt að kaupa miða í miðasölu Broadway, á staðnum, eða í síma gegn greiðslu með kretidkorti. Hátíðin verður með hefðbundnu sniði og víst að allir munu skemmta sér vel, borða góðan mat, hlægja að góðum bröndurum og dansa eins og John Travolta. Knapar ársins verða að sjálfssögðu krýndir á hátíðinni. Tilnefndir knapar hafa þegar verið kynntir til sögunnar á www.lhhestar.is. Síminn í miðasölu á Broadway er: 533-1100.
Margareterhof er selt
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Dagur með hestatannlækni