Víðidalurinn fagurt mótssvæði

  • 22. júní 2012
  • Fréttir
Það stefnir í frábært Landsmót hestamanna í Reykjaavík

Allt stefnir í að LM2012 verði eitt allra glæsilegasta Landsmót hestamanna frá upphafi. Ótrúlegar vel heppnaðar fegrunaraðgerðir hafa verið gerðar á Víðidalssvæðinu. Sú aðgerð að „hnappa“ svæðið, Hvammsvöllinn og Reiðhöllina og þar með aðal sýningarsvæðið og veitingasölu, gefur góðar vonir um að þétt og góð stemmning verði á mótinu.

Veðurspáin er ennþá hagstæð, spáð er blíðu fram á fimmtudag í það minnsta. Á meðfylgjandi mynd er Guðmundur Björgvinsson að máta Hrímni frá Ósi á Hvammsvellinum, en hann kemur inn á mótið með hæstu einkunn klárhesta.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link