Meistaradeild LH og UMFÍ hefst 12. febrúar

  • 3. febrúar 2011
  • Fréttir
Meistaradeild LH og UMFÍ hefst 12. febrúar

Fer aftur af stað en með breyttu sniði þar sem ekki verður um liðakeppni að ræða heldur einstaklingskeppni…

Aldurstakmark keppanda er 14-21 árs.
Fyrsta mótið af þremur verður haldið í Reiðhöllinni í Víðidal 12. febrúar. Þá verður keppt í fjórgangi og T2. Einn inná í einu í fjórgangi, þrír inná í einu í T2. Tímasetning og skráning auglýst síðar.
Ekki er nauðsynlegt að taka þátt í öllum mótunum. Á hverju móti er krýndur sigurvegari hverrar keppnisgreinar. Til þess að eiga möguleika á titlinum stigahæsti knapinn þarf hinsvegar að taka þátt í öllum mótunum. Í lok mótaraðarinnar verða veitt vegleg verðlaun fyrir þrjá stigahæstu knapana.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link