Meistaradeildin sett í níunda sinn
Meistardeildin í hestaíþróttum 2012 var sett á Nauthóli við Nauthólsvík í dag með kynningu á styrktaraðilum og keppnisliðum. Síðan riðu knapar deildarinnar á vaðið og sýndu valda gæðinga í fannalögunum við Nauthólsvík.
Meistaradeildin er nú haldin í níunda sinn og eru sjö lið skráð í keppnina en fjórir knapar eru í hverju liði og keppa þrír úr liði í hverri grein.
Meistardeildin er haldin á Ingólfshvoli í Ölfusi og hefst á keppni í fjórgangi á fimmtudaginn kl. 19. Alls verður keppt í átta greinum á sex mótum.
Hægt verður að sjá beinar útsendingar frá mótunum hér á vefsíðunni en varla kemur það í stað þess að upplifa spennuna í höllinni og fer nú sala á ársmiðum og aðgöngumiðum fram í Líflandi, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi á Selfossi.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir af setningunni síðdegis.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári