Sylvía skiptir um lið
Sylvía Sigurbjörnsdóttir, magnaður knapi með sterka keppnishesta, hefur gengið til liðs við Málningu/Ganghesta í Meistaradeildinni. „Ég átti að vera varamaður í liði Lýsis, en langaði til að fá tækifæri til að spreyta mig af fullum krafti á keppnisvellinum. Siggi Matt og Edda Rún buðu mér að taka sæti í sínu liði – Málning/Ganghestar – sem ég þáði, enda er ég með góða hesta sem verður gaman að tefla fram,“ segir Sylvía, glöð í bragði.
Sylvía mætir með Þóri frá Hólum í fjórganginn, sem er fyrsta keppnisgreinin. „Hann er í frábæru formi miðað við að hann sé nýkominn á hús. Í það minnsta var hann ferskur á æfingu og við gerum okkur besta.”
Það er Edda Rún sem vék svo Sylvía fengi sæti í liðinu. „Þetta leggst gríðarlega vel í okkur,“ segir Edda Rún, hress að vanda. „Hestakostur minn er bestur í fimmgangi og skeiðgreinum, en það er meiri breidd í hestavalinu hjá Sylvíu. Ég ákvað að stíga til hliðar því Sylvía mun styrkja liðið okkar, sem skiptir ekki litlu máli.”
Sigurður Matthíasson (Siggi Matt) mætir að öllum líkindum með Kall frá Dalvík í fjórganginn og Sara Ástþórsdóttir kemur væntanlega með bleikblesóttu hryssuna Sóllilju frá Álfhólum. „Sóllilja er fyrstu verðlauna meri með 9 fyrir tölt, vilja og fegurð í reið og 9,5 fyrir hægt stökk. Hún er ekki fullgerð keppnishryssa, en getur allt og er vaxandi. Svo er það spurningin um dagsformið. Þetta er kát og fjörug hryssa, sem er mjög skemmtilegt að þjálfa,“ segir Sara og var svo rokin í útreiðar. Sara mun að öllum líkindum mæta með Dívu frá Álfhólum í töltkeppni Meistaradeildarinnar.
Meistaradeildin hefst nk. fimmtudagskvöld, 26. janúar kl. 19 í Ölfushöllinni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári