Úrtaka fyrir fjórðungsmót
Mótið verður haldið laugardaginn 27. Maí 2017 á vallarsvæði Skugga í hesthúsahverfinu í Borgarnesi. Boðið verður uppá A-flokk gæðinga, B-flokk gæðinga, ungmennaflokk, unglingaflokk og barnaflokk. Skráningargjald í A-flokk, B-flokk og ungmennaflokk er 3000kr,- og í unglingaflokk og barnaflokk 1500 kr,-. Við viljum minna á að þáttaka á mótinu er bundin aðild að hestamannafélögunum Faxa og Skugga í barna- og unglinga- og ungmennaflokki (og hestur þarf einnig að vera í eigu félagsmanns). En í A- og B-flokki þarf eigandi hestsins (keppandans) að vera í Faxa eða Skugga.
Keppni mun hefjast stundvíslega klukkan 9:00 á laugardagsmorguninn. Nánari dagskrá kemur síðar um leið og ráslistar verða birtir. Opið er fyrir skráningar frá og með 18. Maí 2017 og lokað verður fyrir skráningar að miðnætti Miðvikudaginn 24. Maí 2017. Skráningin fer fram inná Sportfeng og heitir mótið Líflandsgæðingamót og úrtaka fyrir fjórðungsmót og velja þarf hestamannafélagið Skugga sem mótshaldara. Ef að einhver vandamál skapast vegna skráningar inná Sportfeng er hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected] og þar þarf að koma fram nafn og kennitala knapa, nafn og IS númer hests uppá hvaða hönd er riðið.
Ef að keppendum vantar stíu á meðan á mótinu stendur eru leigðar stíur í reiðhöllinni Faxaborg og sér Heiða Dís um að úthluta þeim í s. 862-8932.
Allar upplýsingar á meðan á mótinu stendur verða birtar á Facebooksíðunni “KB mótaröðin”.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson