Nýr þáttur af Hestalífinu – Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

  • 8. apríl 2020
  • Fréttir

Mynd: HESTALÍFIÐ/HÖRÐUR ÞÓRHALLSSON

Á vefsíðu Vísis má nú finna nýjasta þáttinn af mannlífsþættinu Hestalífið sem er í umsjá Telmu Tómasson. Viðmælandi Telmu að þessu sinni er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra  en þáttinn má nálgast með því að smella hér.

Í viðtali við Telmu á vef Eiðfaxa sem birtist þann 25 mars segir hún m.a. ,Hugmyndin á bak við þættina er sú að ræða við fólk sem stendur framarlega á hinum ýmsu sviðum í þjóðfélaginu og hefur það eitt sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á hestum og hestamennsku. Með því langar mig til að gefa öðrum hestamönnum og ekki síst almenningi, innsýn í einstakan og fjölbreyttan heim hestamennskunnar, koma því áleiðis til eins margra og hægt er hve umstangið í kringum hesta er dásamlegt. Hestalífið er nafnið á þáttunum og er í hnotskurn það sem við viljum sýna.“

Viðtalið við Telmu má nálgast með því að smella hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link