Minna er meira

  • 2. maí 2012
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Kamban frá Húsavík - Gæðingur fyrir alla

Ræktun 2012 var haldin í Ölfushöllinni síðastliðinn laugardag í boði Hrossaræktarsamtaka Suðurlands. Mörg skemmtileg atriði voru á dagskrá.

Sá hestur og knapi sem báru af og vöktu hvað mesta hrifningu var Kamban frá Húsavík með sinn unga og efnilega knapa á baki, Glódísi Rún Sigurðardóttur, en hún varð efst í barnaflokki á LM2011 á þessum frábæra hesti.

Þegar Kamban flaug eftir reiðhallargólfinu á tölti, fús og einbeittur í hvaða átt sem riðið var, með sinn lauflétta og átakslitla knapa, dúkkaðu upp í huga margra hin fleygu orð: Minna er meira!

Án efa spila saman frábær lund þessa hests og hin létta byrði. En kannski er þetta vísbending um að hestar séu betri eftir því sem ábendingarnar eru minni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link