Vesturlandssýning í Faxaborg
„verður haldin laugardaginn 23. mars 2013. Aðgangseyrir: 1.500 fyrir fullorðna, 500 kr. fyrir 6-12 ára og frítt fyrir 5 ára og yngri.
Fulltrúar hestamannafélaga á Vesturlandi og Hrossaræktarsambands Vesturlands efna til sýningar.
Nú styttist í Vesturlandssýningu og er undirbúningur í fullum gangi. Dagskráin er þétt og mikil og góð þátttaka á meðal hestamanna á Vesturlandi. Endanleg dagskrá verður auglýst á allra næstu dögum en hún spannar á milli 20-30 atriði. Þar má helst nefna börn, unglinga, A-flokk gæðinga, B-flokk gæðinga, skeið, kynbótahross, ræktunarbú og afkvæmasýningar.
Einnig verða á sýningunni eftirtalin atriði: Menntaskóli Borgarfjarðar, Félag tamningamanna, vestlenskar heimasætur, söngatriði og einhverjir af þeim glæsilegu stóðhestum sem Hrossaræktarsamband Vesturlands býður upp á í ár láta sjá sig svo eitthvað sé nefnt,“ segir í tilkynningu frá Undirbúningsnefnd
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH