Smá frá Þúfu á keppnisbrautina-

  • 9. janúar 2012
  • Fréttir
Smá frá Þúfu á keppnisbrautina-

Heimsmeistarinn Smá frá Þúfu hefur verið skráð til leiks á fyrsta mót ISI-CUP mótaraðarinnar sem haldin verður í Bökeberg í Svíðþjóð 16.-18. mars nk.

Knapi hryssunar er Kristiane Brun Hansen og munu þær keppa í fimmgangskeppni fyrir unga knapa. Það verður spennandi að sjá Smá spreyta sig á keppnisvellinum en hún varð eftirminnilega hæst dæmda 5 vetra hryssa í kynbótadómum Heimsmeistaramótsins í ágúst sl. með 8,37 í aðaleinkunn. Þá hlaut hún jafnan dóm fyrir kosti 8,59, þar af einkunnina 9 fyrir skeið og vilja og geðslag og 8,5 fyrir tölt, brokk og fegurð í reið. 

 

Þessu tengt:

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link