Sigrún yfirreiðkennari Fáks

  • 6. janúar 2012
  • Fréttir
Sigrún yfirreiðkennari Fáks

Sigrún Sigurðardóttir hefur verið ráðin yfirreiðkennari Fáks. Sigrún mun sjá um allt skipulag og utanumhald um námskeiðin í samráði við æskulýðs- og fræðslunefnd Fáks að er fram kemur á heimasíðu félagsins.

 
Mikill fengur er að fá Sigrúnu til starfsins því hún hefur margra, margra áratuga reynslu í reiðkennslu og hefur óhemju þekkingu á öllu sem viðkemur reiðmennsku.
 
Knapamerkjanámskeiðin hefjast 16. janúar og næstu daga munu önnur námskeið á vegum félagsins verða auglýst á vefnum, s.s. byrjendanámskeið, almenn námskeið og keppnisnámskeið.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link