Dagur frá Trierberg

  • 2. október 2012
  • Fréttir
Það vakti nokkra athygli á HM2011 í Austurríki að Dagur sá er Karly Zingsheim keppti á í tölti var ekki skráður með uppruna.

Það vakti nokkra athygli á HM2011 í Austurríki að Dagur sá er Karly Zingsheim keppti á í tölti var ekki skráður með uppruna. Slíkt heyrir til undantekninga í dag, einkum þegar um þekkt keppnishross er að ræða. Við eftirgrennslan kom í ljós að ræktandi hans er Udo Haus og hann er frá Trierberg. Hann er stórættaður, undan Dökkva frá Mosfelli og Fenju frá Trierberg, Fánadóttur frá Hafsteinsstöðum. Hesturinn er í eigu Karly Zingsheim og er ein aðal stjarna Þjóðverja í tölti um þessar mundir. Karly og Dagur stóðu efstir eftir forkeppni í tölti á HM2011 en urðu að lúta í lægra haldi fyrir Jóhanni Skúlasyni og  Hnokka frá Fellskoti. Telja má nokkuð víst að Karly hyggst endurheimta Tölthornið á Degi fyrir Þjóðverja á HM2013 í Berlín.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link