Ætlar þú að fara á Heimsmeistaramótið í Berlín ?

  • 1. júní 2012
  • Fréttir
Ætlar þú að fara á Heimsmeistaramótið í Berlín ?

Landsliðsnefnd Landssambands hestamannafélaga hefur, í samvinnu við Úrval –Útsýn, sett saman ferð á HM2013 í Berlín. Af hverri seldri ferð rennur hluti til íslenska landsliðsins svo þeir sem bóka þessa ferð eru beinir þátttakendur í þeirri fjáröflun sem nú fer fram vegna landsliðsins okkar. Ferðin er frá 05. ágúst til 12. ágúst, flogið beint á Berlín, gist á hótel Estrel, sem er fjögurra stjörnu hótel í Berlín og er í 7 km fjarlægð frá mótsstað.  Á vellinum erum við með miða í yfirbyggðri stúku á besta stað á vellinum. 

Ýmislegt verður í boði fyrir okkar farþega á mótsstað og á hóteli en  m.a. verður farið yfir horfur og framvindu mótsins með skemmtilegum spekingum, móttökuteiti og fleira þess háttar. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.
 
Verðið á mann er 194.500 kr og innifalið í því er flug, skattar, akstur, miðar í yfirbyggðri stúku sem gilda alla vikuna, gisting á Hótel Estrel með morgunmat, síðar auglýst dagskrá og ýmsar lokaðar uppákomur, skoðunarferð um Berlín og íslensk fararstjórn.
 
Nokkur sæti eru enn laus í þessa ferð og hægt að bóka á netinu á www.urvalutsyn.is eða hafa samband við skrifstofu Úrval-Útsýn í Lágmúla 4, s. 585 4000.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link