Berglind komin í hnakkinn
Berglind Ragnarsdóttir og hestur hennar Frakkur frá Laugavöllum hlutu slæma byltu í sumar á Landsmótinu í milliriðli í B-flokk. Þau voru í 6. sæti eftir forkeppnina með með 8,70 í einkunn, þannig að það var mikið í húfi. En óhöppin gera ekki boð á undan sér. Berglind er sem betur fer komin í hnakkinn aftur: „Viðbeinið tvíbrotnaði, en ég þakka bara fyrir að ekki fór verr. Ég er farin að ríða út og er bara nokkuð góð, þótt ég finni auðvitað fyrir þessu ennþá. Við Frakkur höldum okkar striki og ég mun halda áfram að keppa á honum á næsta ári,“ segir Berglind. Myndina tók Jón Björnsson á LM2012.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH