Svellkaldar konur á næsta leiti
Hið vinsæla ístöltsmót kvenna „Svellkaldar konur“ verður haldið í skautahöllinni í Laugardal í Reykjavík laugardaginn 12. mars. Boðið verður upp á keppni í þremur flokkum:
1. Opinn flokkur: Ætlaður vönum knöpum. Konur sem unnið hafa til verðlauna í keppnum eru hvattar að skrá sig í þennan flokk. Þessi flokkur er þó opinn hverjum þeim sem vill skrá sig í hann, burtséð frá reynslu.
2. Meira keppnisvanar: Ætlaður konum sem hafa keppnisreynslu.
3. Minna vanar: Ætlaður konum sem eru að stíga sín fyrstu skref í keppni eða hafa mjög litla keppnisreynslu.
Aldurstakmark er 18 ár, miðað við ungmennaflokkinn.
Hafi keppandi sigraði í einhverjum styrkleikaflokki á Svellköldum áður verður viðkomandi að færa sig upp um flokk. Það sama á við um keppendur sem hafa þrisvar sinnum eða oftar komist í A-úrslit í tilteknum styrkleikaflokki, þeir skulu færa sig upp.
Hver keppandi má einungis skrá einn hest til leiks, en fyllist ekki þau hundrað pláss sem í boði eru mun mótsstjórn ákvarða hvernig þeim sem eftir standa verður úthlutað. Eingöngu 100 pláss eru í boði og gildir lögmálið „fyrstir skrá – fyrstir fá.“
Í 3. flokki er sýnt hægt tölt og svo fegurðartölt, en í hinum flokkunum er sýnt hægt tölt, tölt með hraðabreytingum og fegurðartölt. Eingöngu er riðið upp á vinstri hönd og ekkert snúið við. Keppendur eru hvattir til að sýna metnað við val á flokki og bent er á að þegar talað er um keppnisreynslu í þessu samhengi er átt við alls konar keppni, ekki bara keppni á ís.
Skráning mun fara fram dagana 1.-4. mars á vefnum http://www.gustarar.is. Eingöngu verður skráð á vefnum og þarf að ganga frá greiðslu skráningargjalda með greiðslukorti um leið. Skráningargjald kr. 4.500.-
Glæsileg verðlaun í boði og fleira skemmtilegt! Við munum halda áfram að kynna mótið á næstu vikum svo fylgist með á vefmiðlum hestamanna.
Allur ágóði af mótinu mun renna til landsliðsins í hestaíþróttum. Mótið er opið og allar konur 18 ára og eldri eru velkomnar til leiks! Takið daginn frá!
Margareterhof er selt
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Dagur með hestatannlækni