Fimmgangur Meistara
Keppni í fimmgangi meistara fór fram í dag á íslandsmótinu í hestaíþróttum.
Margar góðar sýningar litu dagsins ljós. Úrslitin ættu, samkvæmt einkunn í forkeppni, að verða spennandi. Í b-úrslitum eru fjórir knapar með einkunnina 7,10 þau Sina Scholz, Mette Mannseth, Gústaf Ásgeir og Jakob Svavar og í tíunda sætinu er Sigvaldi Lárus með 7,07 þannig að það verður spennandi að sjá hver vinnur sér inn sæti í A-úrslitum.
Efst að lokinni forkeppni er Olil Amble og Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum en sýning hennar var örugg og hlaut hún til að mynda meðaleinkunnina 8,17 fyrir bæði tölt og skeið. Þau sigruðu Reykjavíkurmeistaramót um daginn og teljast sigurstrangleg á Íslandsmótinu.
Annar að lokinni forkeppni er Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu með 7,47, glæsihryssa sem státar af miklum glæsileika og mýkt.
Eyrún Ýr og Hrannar eru í þriðja sætinu en þau þekkjast vel og hafa til að mynda orðið íslandsmeistara í fimmgangi, árið 2016, sama ár og þau unnu A-flokk og eru því til alls líkleg.
Fjórði er Hinrik Bragason á Byr frá Borgarnesi með 7,40 í einkunn. Það má segja að með þessari einkunn hafi þeir félagar stimplað sig rækilega inn í baráttuna um það að komast á HM.
Í fimmta sæti er Þórarinn Eymundsson og Vegur frá Kagaðarhóli, Þórarinn er einnig líklegur til að komast í landsliðið með Veg og verður gaman að sjá hvernig þeim reiðir af í tölti T1 og gæðingaskeiði upp á styrkleika þeirra í samanlögðum fimmgangsgreinum.
Fimmgangur F1
Opinn flokkur – Meistaraflokkur
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Olil Amble Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum 7,77
2 Árni Björn Pálsson Katla frá Hemlu II 7,47
3 Eyrún Ýr Pálsdóttir Hrannar frá Flugumýri II 7,43
4 Hinrik Bragason Byr frá Borgarnesi 7,40
5 Þórarinn Eymundsson Vegur frá Kagaðarhóli 7,13
6-9 Sina Scholz Nói frá Saurbæ 7,10
6-9 Mette Mannseth Kalsi frá Þúfum 7,10
6-9 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sproti frá Innri-Skeljabrekku 7,10
6-9 Jakob Svavar Sigurðsson Skrúður frá Eyri 7,10
10 Sigvaldi Lárus Guðmundsson Tromma frá Skógskoti 7,07
11 Sigurður Vignir Matthíasson Tindur frá Eylandi 7,03
12 Reynir Örn Pálmason Brimnir frá Efri-Fitjum 7,00
13 Viðar Ingólfsson Hængur frá Bergi 6,97
14 Gústaf Ásgeir Hinriksson Brynjar frá Bakkakoti 6,90
15-16 Helga Una Björnsdóttir Penni frá Eystra-Fróðholti 6,87
15-16 Hjörvar Ágústsson Ás frá Kirkjubæ 6,87
17 Jóhanna Margrét Snorradóttir Prins frá Hellu 6,80
18-20 Atli Guðmundsson Júní frá Brúnum 6,77
18-20 Herdís Rútsdóttir Klassík frá Skíðbakka I 6,77
18-20 Helga Una Björnsdóttir Júlía frá Syðri-Reykjum 6,77
21 Sólon Morthens Katalína frá Hafnarfirði 6,73
22 Hulda Gústafsdóttir Vísir frá Helgatúni 6,70
23 Henna Johanna Sirén Gormur frá Fljótshólum 2 6,63
24-25 Sara Sigurbjörnsdóttir Flóki frá Oddhóli 6,60
24-25 Gústaf Ásgeir Hinriksson Nagli frá Flagbjarnarholti 6,60
26-28 Daníel Gunnarsson Sónata frá Efri-Þverá 6,57
26-28 Máni Hilmarsson Nótt frá Reykjavík 6,57
26-28 Jakob Svavar Sigurðsson Sesar frá Steinsholti 6,57
29 Matthías Leó Matthíasson Galdur frá Leirubakka 6,53
30 Valdís Björk Guðmundsdóttir Fjóla frá Eskiholti II 6,50
31 Hinrik Bragason Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði 6,47
32 Guðmundur Björgvinsson Sesar frá Þúfum 6,40
33 Snorri Dal Engill frá Ytri-Bægisá I 6,33
34 Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ 6,30
35 Jón Bjarni Smárason Gyrðir frá Einhamri 2 6,20
36 Páll Bragi Hólmarsson Hrannar frá Austurkoti 6,13
37 Magnús Bragi Magnússon Snillingur frá Íbishóli 6,03
38 Annie Ivarsdottir Lipurtá frá Hafnarfirði 6,00
39-40 Randi Holaker Þytur frá Skáney 5,97
39-40 Sigurður Vignir Matthíasson Slyngur frá Fossi 5,97
41 Þórarinn Eymundsson Hlekkur frá Saurbæ 5,73
42 Elisabeth Marie Trost Greifi frá Söðulsholti 5,53
43 Hanna Rún Ingibergsdóttir Dropi frá Kirkjubæ 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH