Þórarinn og Gullbrá sigruðu keppni í gæðingaskeiði meistara
Þórarinn og Gullbrá urðu Íslandsmeistarar í 150 metra skeiði í fyrra, myndin er tekinn við það tilefni.
Dagurinn var langur í gær á Reykjavíkurmeistaramóti og lauk honum með gæðingaskeiði meistara. í þeim flokki sásust mörg góð tilþrif enda mikið af frábærum skeiðhrossum og knöpum skráð til leiks.
Það fór svo að Þórarinn Eymundsson og Gullbrá frá Lóni stóðu efst í þessum flokki með 8,10 í einkunn í öðru sæti varð Árni Björn Pálsson á Óliver frá Hólaborg með 8,00 í einkunn, en hann er jafnframt Reykjavíkurmeistari í greininni
Þá var sagt frá því í gærkvöldi hér á vef Eiðfaxa að Elli Sig og Hnikar frá Ytra-Dalsgerði hefðu sigrað örugglega gæðingaskeið í 1.flokki en þeir eru samtals 99 ára. Ölll önnur úrslit gærdagsins má nálgast með því að smella hér.
Reykjavíkurmeistaramótið hefst í dag klukkan 10:00 á tölti ungmenna og deginum lýkur á keppni í 250 og 150 metra skeiði.
| föstudagur, 3. júlí 2020 | |
| 10:00 | Tölt T1 ungmennaflokkur |
| 12:25 | Hádegishlé |
| 13:05 | Tölt T1 meistaraflokkur 1-30 |
| 15:35 | Kaffihlé |
| 15:50 | Tölt T1 meistaraflokkur 31-48 |
| 17:20 | Tölt T4 barnaflokkur |
| 17:35 | Tölt T4 unglingaflokkur |
| 18:05 | Tölt T4 1. flokkur |
| 18:25 | Tölt T4 meistaraflokkur |
| 19:00 | Kvöldmatarhlé |
| 19:45 | Skeið 250m & 150m |
| 21:45 | Dagskrárlok |
| Gæðingaskeið PP1 | ||||
| Opinn flokkur – Meistaraflokkur | ||||
| Sæti | Knapi | Hross | Aðildarfélag knapa | Einkunn |
| 1 | Þórarinn Eymundsson | Gullbrá frá Lóni | Skagfirðingur | 8,10 |
| 2 | Árni Björn Pálsson | Óliver frá Hólaborg | Fákur | 8,00 |
| 3 | Helga Una Björnsdóttir | Penni frá Eystra-Fróðholti | Þytur | 7,92 |
| 4 | Jóhann Kristinn Ragnarsson | Þórvör frá Lækjarbotnum | Sprettur | 7,92 |
| 5 | Sigurður Vignir Matthíasson | Léttir frá Eiríksstöðum | Fákur | 7,83 |
| 6 | Sigurður Vignir Matthíasson | Tindur frá Eylandi | Fákur | 7,63 |
| 7 | Hekla Katharína Kristinsdóttir | Jarl frá Árbæjarhjáleigu II | Geysir | 7,58 |
| 8 | Viðar Ingólfsson | Ör frá Mið-Fossum | Fákur | 7,54 |
| 9 | Konráð Valur Sveinsson | Tangó frá Litla-Garði | Fákur | 7,50 |
| 10 | Sigurbjörn Bárðarson | Hálfdán frá Oddhóli | Fákur | 7,46 |
| 11 | Hulda Gústafsdóttir | Skrýtla frá Árbakka | Fákur | 7,42 |
| 12 | Jóhann Magnússon | Óskastjarna frá Fitjum | Þytur | 7,42 |
| 13 | Þorgils Kári Sigurðsson | Gjóska frá Kolsholti 3 | Sleipnir | 7,42 |
| 14 | Haukur Baldvinsson | Sölvi frá Stuðlum | Sleipnir | 7,33 |
| 15 | Ásmundur Ernir Snorrason | Smári frá Sauðanesi | Geysir | 7,14 |
| 16 | Snorri Dal | Engill frá Ytri-Bægisá I | Sörli | 7,04 |
| 17 | Konráð Valur Sveinsson | Laxnes frá Ekru | Fákur | 7,04 |
| 18 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Mjölnir frá Bessastöðum | Fákur | 6,92 |
| 19 | Hanna Rún Ingibergsdóttir | Dropi frá Kirkjubæ | Sörli | 6,88 |
| 20 | Hinrik Þór Sigurðsson | Óðinn frá Silfurmýri | Sörli | 6,75 |
| 21 | Viðar Ingólfsson | Huginn frá Bergi | Fákur | 6,63 |
| 22 | Adolf Snæbjörnsson | Árvakur frá Dallandi | Sörli | 5,92 |
| 23 | Sigursteinn Sumarliðason | Stanley frá Hlemmiskeiði 3 | Sleipnir | 5,79 |
| 24 | Larissa Silja Werner | Páfi frá Kjarri | Sleipnir | 5,21 |
| 25 | Líney María Hjálmarsdóttir | Þróttur frá Akrakoti | Skagfirðingur | 4,92 |
| 26 | Arnar Bjarki Sigurðarson | Ramóna frá Hólshúsum | Sleipnir | 4,33 |
| 27 | Hrefna María Ómarsdóttir | Alda frá Borgarnesi | Fákur | 4,25 |
| 28 | Vigdís Matthíasdóttir | Tign frá Fornusöndum | Fákur | 3,88 |
| 29 | Líney María Hjálmarsdóttir | Nátthrafn frá Varmalæk | Skagfirðingur | 3,79 |
| 30 | Þorgils Kári Sigurðsson | Snædís frá Kolsholti 3 | Sleipnir | 3,38 |
| 31 | Larissa Silja Werner | Fálki frá Kjarri | Sleipnir | 2,79 |
„Núna er þetta bara upp á við“