Stökk- og skeiðkappreiðar
Hér í dag eftir að yfirliti kynbótahrossa og verðlaunaafhendingu var lokið var tekið til við keppni í stökkkappreiðum og 100 metra skeiði.
Eiðfaxi mun fjalla frekar um kynbótahross á Fjórðungsmóti í næsta tölublaði Eiðfaxa sem kemur út í lok júlí.
Það var skemmtilegt að horfa á kappreiðar í stökki og þeir áhorfendur sem á svæðinu virtust skemmta sér vel við að fylgjast með því. Keppnisgrein sem mætti nýta meira og hefur mikið skemmtanagildi.
Jón Ársæll Bergmann og Vísir frá Búð sigruðu í 350 metra stökki á 25,74sekúndum. Í öðru sæti varð Hermann Árnason og Torfi frá Eyjarhólum, en talsverður aldurs og þyngarmundur er á þeim Jóni og Hermanni. Hermann sagði frá því sjálfur í dag að það munaði á þeim sextíu kílóum og 47 árum.
Það var þó Vilborg Smáradóttir sem hleypti Torfa í dag.
Seyður frá Gýgjarhóli var fljótastur í hundrað metra skeiði á tímanum 7,49 sekúndum. Alls voru fjórir sprettir í 100 metra skeiði, 2 í gærkvöldi og seinni tveir í kvöld.
Stökk 350m P1
Opinn flokkur
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Tími
1 Jón Ársæll Bergmann Vísir frá Búð Rauður/ljós-stjörnótt Geysir 25,74
2 Hermann Árnason Torfi frá Eyjarhólum Jarpur/rauð-stjörnótt Sindri 26,63
3 Elmar Ingi Guðlaugsson Kufl frá Grafarkoti Brúnn/milli-skjótt Fákur 27,40
4 Hortense Huault-Dupuy Stirning frá Fellsási Rauður/milli-skjótt Geisli 27,80
Flugskeið 100m P2
Opinn flokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson Seyður frá Gýgjarhóli 7,49
2 Ingibergur Árnason Sólveig frá Kirkjubæ 7,59
3 Friðrik Reynisson Seiður frá Hlíðarbergi 7,60
4 Hans Þór Hilmarsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði 7,72
5 Svavar Örn Hreiðarsson Skreppa frá Hólshúsum 7,84
6 Vilborg Smáradóttir Klókur frá Dallandi 8,02
7 Hekla Katharína Kristinsdóttir Lukka frá Árbæjarhjáleigu II 8,03
8 Hlynur Guðmundsson Klaustri frá Hraunbæ 8,04
9 Hermann Árnason Heggur frá Hvannstóði 8,10
10 Hermann Árnason Árdís frá Stóru-Heiði 8,20
11 Guðmundur Baldvinsson Höfði frá Bakkakoti 8,30
12 Vilborg Smáradóttir Skúta frá Skák 8,33
13 Hjördís Rut Jónsdóttir Stússý frá Sörlatungu 8,45
14 Jón Ársæll Bergmann Sif frá Eystra-Fróðholti 8,56
15 Bjarney Jóna Unnsteinsd. Gunnvör frá Lækjarbrekku 2 8,81
16 Sigurður Sigurðarson Hnokki frá Þóroddsstöðum 8,87
17 Liva Marie Hvarregaard Nielsen Sleipnir frá Hlíðarbergi 9,04
18-20 Svavar Örn Hreiðarsson Flugar frá Akureyri 0,00
18-20 Elmar Ingi Guðlaugsson Kufl frá Grafarkoti 0,00
18-20 Hulda Björk Haraldsdóttir Draumur frá Borgarhóli 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH