Fákar og fjör 17.apríl
Laugardaginn 17. apríl n.k. fer fram í TopReiterhöllinni á Akureyri stórsýningin Fákar og fjör 2010 sem er stórveisla hestamanna, nú haldin í annað sinn í glæsilegri reiðhöll Léttismanna á Akureyri.
Á hátíðinni verður margt glæsilegra atriða og má nefna:
- Gígjar með afkvæmum
- Hófur og Siggi
- Top Reiter liðið
- Jói Konn – In Memoriam – Kristján Jóhannsson, stórsöngvari
- Hafsteinsstaðir
- Litli-Garður/Árgerði
- Hrymur með afkvæmum
- Haukur frá Hrafnagili
- Norðlensk hrossarækt
- Stóðhestar úr Eyjafirði
- “Kátir karlar”
- Skeiðkeppni úrvalshesta og margt fleira.
Þá verður stórdansleikur í reiðhöllinni að hátíðinni lokinni og mun Tríó Kobba Jóns halda uppi stuðinu. Miðaverð: kr. 2500,- (miðinn gildir bæði á sýninguna og á dansleikinn). Forsala aðgöngumiða Fákasport og Lífland Akureyri. Frítt fyrir 12 ára og yngri.
Stóðhestakynning verður á laugardeginum í Top Reiter höllinni frá kl. 13:00 og er þar tækifæri fyrir stóðhestaeigendur og umsjónarmenn að koma sínum hestum á framfæri. – Skráning í kynninguna á [email protected] til og með 13. apríl n.k.
Allar nánari upplýsingar um stóðhestakynninguna og sýninguna í heild sinni á www.lettir.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH