Þrautabraut fyrir yngstu knapana

  • 3. mars 2015
  • Fréttir
Annað vetrarmót Geysis verður haldið næstu helgi.

Annað vetrarmót Geysis verður haldið laugardaginn 7. mars í Rangárhöllinni, Gaddstaðaflötum.

Skráning hefst samdægurs kl. 12 og mótið sjálft byrjar kl. 13, að er fram kemur í tilkynningu frá vetrarmóta- og æskulýðsnefndum Geysis.

„Eftirtaldir flokkar verða í boði: Börn, Unglingar, Ungmenni, Áhugamenn og Opinn flokkur. Parið (knapi/hestur) safnar stigum í mótaröðinni. Skráningargjald er 2000kr. (ekki posi) frítt fyrir börn og unglinga.Ath. Ef veður og aðstæður leyfa verður reynt að fara út á völl með unglinga og eldri flokka.

Foreldrar ath. Pollastundin verður stundvíslega kl: 12, fyrir vetrarmótið. Börn 9 ára og yngri (Polla flokkur) ! Leiðbeinandi verður á staðnum til að stjórna en að sjálfsögðu koma foreldrar með börnum sínum. Farið verður í gegnum þrautabraut á hestum og ýmislegt skemmtilegt. Smá sýning og viðurkenningar fyrir þáttökuna veittar í lokin. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.“

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link