Reykjavíkurmeistaramót
Fáksmenn hafa forgang í dag, 1. maí, til að skrá á Reykjavíkurmeistaramótið sem haldið verður í Víðidalnum 9.-14. maí n.k. Frá og með 2. maí, munu skráningar opnast fyrir aðra keppendur.
Skráningarfresti lýkur síðan á miðnætti þann 4. maí. Mjög strangt verður tekið á þessum skráningarfresti, ekki verður hægt að skrá eftir að honum lýkur og ekki verður tekið við skráningum sem berast með tölvupósti, þ.e. allar skráningar skulu fara í gegnum Skráningarkerfi Sportfengs:http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add
Dagskrá verður á þá leið að fjórgangur verður á þriðjudegi og miðvikudegi, fimmgangur á fimmtudegi, tölt á föstudegi og skeið á laugardegi. Athugið þó að þetta fer alveg eftir skráningu og eru þess vegna drög á þessum tímapunkti.
Í ár verður settur hámarksfjöldi þátttakenda í hringvallargreinarnar, sjá töflu:
Keppnisgrein
Hámark
Fjórgangur ungmennaflokkur V2
25
Fjórgangur unglingaflokkur V2
35
Fjórgangur 1. flokkur V2
30
Fjórgangur 2. flokkur V2
25
Fjórgangur meistaraflokkur V1
20
Fjórgangur börn V2
25
Fjórgangur minna vanir V5
8
Fimmgangur 1.flokkur F2
20
Fimmgangur Ungmenni F2
15
Fimmgangur unglingar F2
15
Fimmgangur 2. flokkur F2
15
Fimmgangur meistaraflokkur F1
25
Tölt ungmenni T3
20
Tölt unglinga T3
25
Tölt T7 opinn flokkur
12
Tölt T7 17 ára og yngri
8
Tölt börn T3
15
Tölt 2.flokkur T3
20
Tölt 1. flokkur T3
20
Tölt meistara T1
25
Tölt T2 meistaraflokkur
7
Tölt T4 ungmennaflokkur
10
Tölt T4 unglingaflokkur
10
Tölt T4 1. flokkur
10
Tölt T4 2. flokkur
5
Skráningargjöldin verða þau sömu og 2016:
- Meistaraflokkur – 6.500 kr. (nema gæðingaskeið 6.000 kr.)
- 1.flokkur, 2.flokkur og ungmennaflokkur – 6.000 kr.
- Unglingaflokkur og barnaflokkur – 4.500 kr.
- Kappreiðaskeið – 4.500 kr.
Hér er nýjasta útgáfan af lögum og reglum LH og FEIF, keppendur eru ábyrgir fyrir því að kynna sér þær: http://www.lhhestar.is/static/files/Log_og_reglur/2017/lh_logogreglur_28032017_prent.pdf
Mótanefnd Fáks
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári