Hagaljómi óskast í Hross
Benedikt Erlingsson er alveg að fara á límingunum, vantar svo gráa hryssu - strax!
Viltu gera gráu merina þína að kvikmyndastjörnu?
Við auglýsum eftir grárri hryssu til að leika mjög mikilvægt hlutverk í kvikmyndinni Hross, eftir Benedikt Erlingsson, til leigu eða láns. Merin yrði leidd undir Gamm frá Hemlu þann 27.ágúst. Skilyrði eru að hún sé hvít eða grá og reiðfær. Peningar eru í boði fyrir eiganda og hugsanlegt fyl. Myndir sendist á „[email protected]“. Við þurfum skjót svör!
Kær kveðja, Benedikt Erlingsson og félagar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH