Landsliðshrossin tilbúin í ferðalagið – myndir

  • 21. júlí 2011
  • Fréttir
Landsliðshrossin tilbúin í ferðalagið - myndir

Í dag mættu landsliðsmenn og hross að Grænhól í Ölfusi þar sem lið dýralækna skoðuðu hrossin í síðasta sinn, skráðu á þau vegabréf og gerðu þau ferðbúin fyrir Austurríki.

Hulda Geirsdóttir var þar mætt til að fara yfir reiðtygi knapanna áður en þau voru send til meginlandsins og Sigurður Torfi Sigurðsson sá til þess að öll járning væri lögleg og rétt.

Landsliðshrossin munu halda til meginlandsins á sunnudag og verða komin til Austurríkis aðfaranótt mánudags. Nokkrir knapar og landsliðsstjóri mun fylgja hrossunum á ferðalaginu og sjá til þess að þau komi heilu og höldnu á leiðarenda, frísk og reiðubúin að takast á við Heimsmeistaramótið í St. Radegund sem hefst mánudaginn 1. ágúst.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link