Hörð keppni ungmenna framundan – viðtal við Agnesi Heklu

  • 20. júlí 2011
  • Fréttir
Hörð keppni ungmenna framundan - viðtal við Agnesi Heklu

Agnes Hekla Árnadóttir og Vignir frá Selfossi hafa náð góðum árangri á keppnisbrautinni undanfarið ár og hafa þau nær undantekningalaust blandað sér í toppbaráttu í tölt og fjórgangskeppnum ungmenna. Þau urðu m.a. Reykjavíkurmeistarar í fjórgangi og tölti og samanlögðum fjórgangsgreinum í fyrra, voru í öðru sæti í fjórgangi og í þriðja sæti í tölti í Íslandsmóti í fyrra, sigruðu töltkeppni Gullmótsins í ár og urðu í 5. sæti í ungmennaflokks á nýafstöðnu Landsmóti. Nú munu þau takast á við sitt stærsta verkefni, en í gær var tilkynnt að þau hefðu verið valin af liðsstjórum í landsliðið.

“Ég ákvað að taka þátt í úrtöku fyrir HM en var samt ekki ákveðin í því að vilja fara út. En þegar mér bauðst sæti ákvað ég að þiggja það, enda er þetta gott tækifæri fyrir mig,” segir Agnes Hekla sem hefur unnið með hinn 8 vetra gamla Vigni frá Selfossi síðan í fyrra.

“Ég var að vinna hjá Hauki Baldvinssyni og fékk Vigni lánaðan hjá honum í keppnir. Við náðum mjög góðum árangri og fjölskyldan ákvað því að kaupa hann af Hauki um jólin. Vignir er æðislegur hestur, hann er svakalega rúmur og er með svolítið skap, en það er mjög gaman að vinna með hann,” segir Agnes Hekla.

Hún segir Vigni vera í gríðarlega góðu formi núna, enda hafi hún þjálfað hann í allan vetur með keppnissþátttöku að markmiði. “Í vetur hef ég sótt námskeið hjá Olil Amble og lært þar heilmikið. Hún er frábær reiðkennari. Síðast kepptum við á Landsmóti og Íslandsmóti en hef leyft Vigni að hvíla sig síðan þá. Ég þarf nefnilega að passa að hann nái toppnum í Austurríki.”

Sjálf segist hún reyna að líta á þátttöku sína á Heimsmeistaramótinu eins og aðrar keppnir. “Ég reyni að passa mig að hugsa ekki mikið um að ég sé að fara að keppa fyrir landið, því þá mun ég kannski verða of stressuð,” segir Agnes Hekla hlæjandi en bætir við að í ár séu afar sterk ungmenni skráð til leiks svo hún búist við harðri keppni.

Fyrirfram hafði bróðir Agnesar, Teitur, hlotið þátttökurétt á Heimsmeistaramóti með árangri sínum á Gamm frá Skíðbakka III í úrtöku, en í gær var ljóst að Gammur færi ekki til Austurríkis. “Gammur var aðeins bólginn á löpp og því var ekki talið sniðugt að fara með hann út,” segir Agnes Hekla sem vonar hins vegar að Teitur fylgi sér út, enda styðji hann alltaf vel við bakið á henni og því skipti hana miklu máli að hafa hann með.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link