Minnt á sýnikennslu í kvöld
Félag tamningamanna minnir á sýnikennslu þeirra Jóhanns Skúlasonar og Iben Andersen á Sauðárkróki annað kvöld, laugardagskvöldið 28. janúar kl. 20.
Samkvæmt heimamönnum sem fylgdust með æfingum í dag verður um tímamótaviðburð að ræða, kvöld sem enginn má missa af – sannkallaðir töfrar í tamningum þar á ferðinni!
Miðaverð er kr. 1.500 og frítt fyrir 12 ára og yngri. Hestamenn eru hvattir til að nýta sér þetta einstaka tækifæri og fjölmenna. Allir velkomnir!
FT – Norður
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson