Fákaflug hefst á föstudag
Fákaflug 2011 hefst nk. föstudag, 29. júlí, kl. 18 á forkeppni í tölti.
„Veitingasala verður á svæðinu alla helgina og á laugardagskvöldið verður kvöldvaka með lifandi tónlist, söng og gleði. Miðaverð inn á svæðið er kr.2.000,- fyrir alla helgina, innifalið í því er tjaldsvæði fyrir þá sem vilja gista, 14 ára og yngri fá frítt inn á svæðið. Að gefnu tilefni viljum við benda á að keppendur þurfa ekki að borga sig inn á svæðið,“ segir í tilkynningu frá mótanefnd Fákaflugs.
Nánari dagskrá og ráslistar birtast fljótlega.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH