Sniðug snjallsímaforrit-
Nú geta hestamenn sem hafa áhuga á keppnum og kynbótadómum nálgast snjallsímaforrit sem reikna út aðaleinkunn í helstu keppnisgreinum íslenskra hrossa.
Jóhannes Erlingsson hefur þróað þessi sniðugu snjallsímaforrit. „Mig langaði að læra að forrita fyrir iPhone, settis niður og spáði í hvað væri einfalt að gera og gæti nýst einhverjum. Kynbótareiknir var það fyrsta sem kom upp í hugann og þegar ég fór að viðra hugmyndina við móður mína, Sigrúnu Sig. reiðkennara, og fleiri hestamenn þá urðu til fleiri hugmyndir að forritum og úr því varð Brekkudómarinn.“
KynbótaReiknir (e. BreedingCalc) er fyrir þá sem áhuga hafa á kynbótaútreikningum, sýnir vægi og reiknar út einkunnir fyrir sköpulag og hæfileika miðað við gefnar tölur. KynbótaReiknir er til á íslensku, ensku, dönsku, sænsku og þýsku.
Allar upplýsingar um KynbótaReikninn má nálgast hér: http://facebook.com/breedingcalc
Hægt er að nálgast svokallaða Android útgáfu af forritinu hér: https://play.google.com/store/apps/details?id=com.urbanmania.breedingcalc
Brekkudómarinn (e. SmartRider) er eins og nafnið gefur til kynna, forrit fyrir þá sem hafa gaman af því að sitja í brekkunni og dæma keppendur samhliða dómurunum í miðju vallar. Forritið reiknar út heildareinkunn fyrir keppanda miðað við gildi hverrar einkunnar fyrir sig og einnig er hægt að skoða hvaða gildi hver einkunn hefur. Þær keppnisgreinar sem forritið býður upp á eru:
Gæðingakeppni:
- A-flokkur
- B-flokkur
- Ungmennaflokkur
- Unglingaflokkur
- Barnaflokkur
- Pollagæðingakeppni
- Gæðingaskeið
Íþróttakeppni
- Fimmgangur (F1 & F2)
- Fjórgangur (V1, V2, V3, V4, V5 & V6)
- Tölt (T1, T2, T3, T4, T5, T6, T7 & T8)
- 250m skeið
- 150m skeið
- Flugskeið 100m
- Pollaþrígangur
Brekkudómarinn er til á eftirfarandi tungumálum: íslensku, ensku, dönsku og þýsku
Þess ber að geta að Brekkudómarinn er með kynbótareikni svo þeir sem kaupa það forrit þurfa ekki að kaupa KynbótaReikninn líka.
Allar upplýsingar um Brekkudómarann má nálgast hér: https://www.facebook.com/pages/SmartRider/132475220213518
Sem stendur eru forritið eingöngu til fyrir iPhone en verið er að vinna að Android útgáfu af því og ætti það að verða tilbúnar innan skamms.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH