Landsþing hafið

  • 19. október 2012
  • Fréttir
Landsþing hafið

Landþing LH er hafið. Haraldur Þórarinsson formaður LH setti landsþingið og gestir minntust látinna félaga. Jón Albert Sigurbjörnsson og Bjarni Finnsson voru settir fundarstjórar.

Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur benti á umræðu um félagskerfið hestamennskunnar, fagnaði setu Gunnars Sturlusonar varaformanns í stjórn alþjóðasamtakanna FEIF.

Landsmótið verður auðheyranlega eitt af hitamálum þingsins. Í máli Guðlaugs kom fram mikilvægi þess fyrir hestamennskunna að nýta þann auglýsingaglugga Heimsmeistarmótið og ekki síst Landsmótið væri og því þyrfti að ríkja sátt um framkvæmd mótsins.

“Þegar Landsmóti hefur verið valinn staður verðum við að vera í takt, hvað sem líður flokkadráttum og taktleysi, ef Landsmót á að eiga sér framtíð,” sagði hann meðal annars.

Ljóst væri að Landsmót rekur sig ekki. Guðlaugur sagði að hestamenn gerðu kröfur um það hvernig mótið eigi að vera en þegar uppi værir staðið gæti hestheimurinn ekki fleytt því. því væri mikilvægt að ræða traustari rekstargrundvöllur Landsmóts á Landsþingi.

Sigrún Ólafsdóttir formaður Félags tamningamanna hvatti þingfulltrúa að fara vel yfir málefni velferða hrossa í keppni.

Kristinn Guðnason, formaður félags hrossabænda, benti á að mikilvægasta verkefni geirans að finna leiðir til að fá fleiri til að stunda hestamennskuna og hvatti til umræðu um það.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link