Íslandsmótið hafið – forkeppni í fimmgangi stendur yfir

  • 14. júlí 2011
  • Fréttir
Íslandsmótið hafið - forkeppni í fimmgangi stendur yfir

Íslandsmótið í hestaíþróttum hófst í morgun á forkeppi í fimmgangi og stendur enn yfir. Fjörutíu og þrír firnasterkir hestar voru skráðir til leiks, hross sem létu til sín taka á Landsmóti, bæði í gæðingakeppni og í kynbótadómum.

Efstur eins og staðan er nú er Reynir Aðalsteinsson á Sikil frá Sigmundarstöðum en þeir hlutu einkunnina 7,30. Eyjólfur Þorsteinsson og Kraftur frá Efri Þverá hlutu 7,03 og eru í öðru, að er fram kemur á heimasíðu hestamannafélagsins Sleipnis.

 

Eftir að 25 hestar hafa lokið keppni er staðan þessi:
1. Reynir Aðalsteinsson og Sikill  frá Sigmundastöðum 7.30
2. Eyjólfur Þorsteinsson og Kraftur 7.03
3. Daníel Gunnarsson og Vindur 6.87
4. Mette Mannseth og Hnokki 6.87

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link