Óskað eftir nýjum liðum

  • 22. maí 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Meistaradeildin í hestaíþróttum stendur fyrir umspili fyrir þátttöku á næsta keppnistímabili.

Meistaradeild í hestaíþróttum auglýsir eftir nýjum liðum sem hafa áhuga á að taka þátt í deildinni á komandi keppnistímabili.

„Áhugasömum er bent á að senda tölvupóst á [email protected] fyrir 3.júní nk.

Umspil verður haldið að kvöldi 18. júní nk. þar sem þrír knapar frá nýju liði og neðsta liði deildarinnar 2015 keppa í fjórgang, fimmgang og tölti. Keppendur verða að hafa aðgang að þeim hestum sem þeir koma með í umspilið á komandi keppnistímabili.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link