Íslandsmót lauk á sigri heimsmeistaramótsfara
Heimsmeistarafararnir Árni Björn Pálsson og Aris frá Akureyri sýndu hvers þeir eru megnugir á sínu síðasta móti áður en þeir halda til Austurríkis, þegar þeir sigruðu fimmgangskeppni Íslandsmótsins. Viðar Ingólfsson og Már frá Feti urðu í öðru sæit og gamla brýnið Reynir Aðalsteinsson og Sikill frá Sigmundarstöðum hlutu brons.
Þótt Þórarinn Eymundsson og Þóra frá Prestsbæ, sem komu efst inn í úrslit, hefðu þurft að sætta sig við 5. sæti eftir að skeiðsprettir skeikuðu gat Þórarinn þó verið kátur með árangurinn enda varð hann Íslandsmeistari í samanlögðum fimmgangsgreinum.
Úrslit fimmgangsins urðu eftirfarandi:
-
Árni Björn Pálsson og Aris frá Akureyri – 7,90
-
Viðar Ingólfsson og Már frá Feti – 7,88
-
Reynir Aðalsteinsson og Sikill frá Sigmundarstöðum – 7,55
-
Eyjólfur Þorsteinsson og Kraftur frá Efri-Þverá – 7,55
-
Þórarinn Eymundsson og Þóra frá Prestsbæ – 7,17
-
Birna Tryggvadóttir og Röskur frá Lambanesi – 0
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH