Skráning hafin á Gæðingaveislu Sörla og Íshesta
Skráning er hafin á gæðingamót sem verður haldið á Sörlavöllum 24.-27. ágúst að er fram kemur í tilkynningu frá mótanefnd Sörla.
„Mótið verður allt hið veglegasta með glæsilegum verðlaunum. Einn og einn verður inn á í einu og mun sína sitt prógram. Hitað verður upp í grillinu á kvöldin og allt gert til þess að öllum líði sem best í Hafnarfirðinum.
Skráning fer fram á netinu fimmtudaginn 18. ágúst – sunnudagsins 21. ágúst á netfangið ; [email protected]
Það sem þarf að koma fram þegar skráð er:
Nafn og kennitala knapa.
IS númer og nafn hests.
Flokkur, keppnisgrein og upp á hvaða hönd skal riðið(í tölti).
Símanúmer knapa.
Skráningargjald er 3.000 krónur og skal leggja inn á reikning 0135-26-2871, kennitala 640269-6509. Setja skal nafn knapa í skýringu og senda staðfestingu á [email protected]
Flokkar í boði:
A flokkur opinn
A flokkur áhugamenn
B flokkur opinn
B flokkur áhugamenn
Ungmennaflokkur
Unglingaflokkur
Barnaflokkur
Tölt meistara
Tölt Opinn
Tölt áhugamenn
Tölt 21. árs og yngri
100 m. skeið
150 m. skeið
250 m. skeið
Taktu þessa daga frá og ekki láta þetta frábæra mót fram hjá þér fara, sjáumst á Sörlavöllum 24.-27.ágúst.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH