Óskar frá Blesastöðum seldur

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Í þjálfun hjá Artemisu Bertus

Óskar frá Blesastöðum hefur fengið nýja eigendur í Þýskalandi samkvæmt heimasíðu Gestüt Sunnaholt (www.gestuet-sunnaholt.de). Þar er hesturinn kynntur sem einn af stóðhestum búsins og sagt að þjálfari hans sé Artemisa Bertus, sem nú rekur tamningastöð á Blesastöðum. Artemisa hefur staðfest að hún sé með Óskar í þjálfun, ásamt fleiri hrossum sem eru í eigu sama aðila. Þar á meðal er alsystir Gára frá Auðsholtshjáleigu, Hrund frá Auðsholtshjáleigu, sem Artemisa sýndi í sumar og fékk 8,24 í aðaleinkunn, klárhryssa. Gestüt Sunnaholt á einnig helming í stóðhestinum Atlasi frá Hvolsvelli á móti Norðmanninum Rune Svendsen, en eigandi Sunnaholt er einnig Norðmaður, búsettur í Þýskalandi. Sá ku eiga eitthvað í handraðanum.  Alla vega ef marka má búgarðinn, sem er stórglæsilegur eins og sjá má HÉR.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link