Stóðhestaveislan – Norðansýning
Stóðhestaveisla Hrossaræktar.is var haldin í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki í gærkveldi fyrir fullu húsi. Blaðamaður Eiðfaxa fékk að fljóta með stórmeisturunum Sigurði Sigurðarsyni og Alberti Jónsyni norður og gaman væri ef mætti hafa allt það eftir sem rætt var á leiðinni norður.
Fjöldi góðra hesta komu fram oftast tveir saman en þó með undantekningum þegar alsystkinin Eldfari og Fura Huginsbörn, Loki með afkvæmi og Heiðurshesturinn Andvari frá Ey. Af hestum sem gerðu góða ferð í höllina í gær má nefna Hrafn og Öngul frá Efri-Rauðalæk frábærir fasmiklir hestar hrafn flugvakur en Öngull klárhestur, Kjark frá Skriðu flottur fulltrúi Mola föður síns og er á margan hátt liprari hestur en Moli en þó með þetta mikla skref og fótarburð, Stefnir frá Þjóðólfshaga Kjarnasonur sem var í úrslitum í B-flokki á LM2012, Gaukur frá Garðsá var föður sínum Andvar til mikils sóm, auk frábærra flugvakra gæðinga eins og Blæs frá Miðsitju og Hrings frá Skarði.
Það var einnig bryddað upp á skemmtilegum atriðum sem brutu upp sýninguna eins og þegar þeir Hlynur frá Haukatungu Syðri og Hnokki frá Dýrfinnustöðum voru frábærlega kynntir af ungum knöpum sínum þeim Aroni Frey og Ingunni Ingólfsdóttur.
Svo er komið að sunnlendingum þegar Stóðhestaveislan verður haldin í Ölfushöllinni á Laugardaginn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH