Opið þrígangsmót í Andvara
Laugardaginn 19. febrúar kl. 17 verður haldið opið þrígangsmót Lýsis í reiðhöllinni í Andvara. Fram kemur í fréttatilkynningu frá mótanefnd Andvara að bjórkvöld verði haldið í félagsheimili Andvara eftir mótið. Frítt er inná bjórkvöldið, bjór og súpa verður í boði á vægu verði.
Til að skrá sig þarf að senda tölvupóst fyrir kl.23:00 miðvikudaginnn 16.febrúar á netfangið [email protected] og greiða þátttökugjald inná bankareikning félagsins.
Eftirfarandi þarf að koma fram; Nafn, símanúmer og kennitala knapa og IS númer hests, uppá hvora hönd er riðið og mikilvægt er að sent verði á e-maili greiðslukvittun fyrir keppnisgjaldi.
Banki 318-26-15502, kennitala 441083-0419. Skráningargjald er 2000kr. (skráningargjald fyrir þriðja hest er 1000kr-með sama knapa)
Fyrirkomulag á mótinu er þannig að tveir eru inná vellinum í einu og ríða eftir þul, val er hvort riðið sé uppá hægri eða vinstri hönd. Riðið er upp á vinstri hönd í úrslitum. Sýna á fegurðartölt, brokk og hægt stökk.
Flokkarnir verða tveir:
1. 17 ára og yngri. (´94 módel og yngri)
2. 18 ára og eldri. (´93 módel og eldri)
Ef frekari spurningar koma upp er hægt að hafa samband í síma 661-2363 eða i gegnum tölvupóst, [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH