Gæðingamót Sleipnis

  • 29. maí 2017
  • Fréttir
Opið gæðingamót Sleipnis fer fram 10.-11. júní

Opið gæðingamót Sleipnis fer fram á Brávöllum á Selfossi helgina 10.-11. Júní. Keppt verður í öllum hefðbundnum greinum gæðingakeppninnar. Auk þess verður boðið upp á C- flokk og C1-flokk en þeir flokkar eru hugsaðir fyrir minna keppnisvana knapa sem vilja taka þátt í þeirri skemmtilegu keppni sem gæðingakeppnin er. Nánar er hægt að lesa um hvernig C-flokkarnir eru riðnir í lögum og reglum LH á blaðsíðu 45, hér er linkur inn á lög og reglur. http://www.lhhestar.is/static/files/Log_og_reglur/2017/lh_logogreglur_28032017_prent.pdf

Sleipnir hvetur félagsmenn sína til þátttöku.

Skráningargjaldið fyrir hverja grein er 4500 kr en fyrir börn og unglinga 3500. Skráningu líkur mánudagskvöldið 5.júní.

Skráning er nú hafin inn á Sportfeng þar sem velja þarf Sleipnir sem mótshaldara. Til þess að skrá í C-flokkanna þarf að velja annað og undir því gildir keppnisgreinin Annað fyrir C-flokk og opinn flokkur -1.flokkur fyrir C1. Kvittun fyrir greiðslu skal berast á [email protected]

Mótanefnd áskilur sér rétt til þess að fella niður flokka ef ekki næg þáttaka næst.        

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link