Halldór og Nátthrafn eru þeir allra sterkustu – öll úrslit
Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi sigruðu ístöltið “Þeir allra sterkustu” sem fram fór í skautahöllinni í Laugardal í kvöld, þriðja árið í röð. Einkunnirnar sem Halldór og Nátthrafn hlutu í A-úrslitum báru merki þess að þeir félagar hafi nær fullkomnað töltsýningu sína, þeir fengu aldrei undir 9 í einkunn og fyrir hægt tölt gaf eitt dómarapar þeim félögum fullt hús stiga. Lokaeinkunn þeirra var 9,22, langt á undan öðrum keppendum, sem voru þó stórglæsilegir.
Sigurður Sigurðarson og Kjarnorka frá Kálfholti hlutu 8,78 og annað sæti og glæsiparið Sara Ástþórsdóttir og Díva frá Álfhólum hlutu 8,56 í einkunn og þriðja sætið.
Áhorfendapallar skautahallarinnar voru troðfullir og mikil stemning var meðal gesta sem fögnuðu mikið stórglæsilegum sýningum. Leifur Jóhannesson var dreginn út sem sigurvegari stóðhestahappadrætti kvöldsins, og hlaut hann folatoll undir Krák frá Blesastöðum 1A.
Úrslit mótsins urðu þessi:
A-úrslit
1. Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi – 9,22
2. Sigurður Sigurðarson og Kjarnorka frá Kálfholti – 8,78
3. Sara Ástþórsdóttir og Díva frá Álfhólum – 8,56
4. Hinrik Bragason og Sveigur frá Varmadal – 8,22
5. Þorvaldur Árni Þorvaldsson og Smyrill frá Hrísum – 7,94
B-úrslit
5. Þorvaldur Árni Þorvaldsson og Smyrill frá Hrísum – 8,11
6. Erla Guðný Gylfadóttir og Erpir frá Mið-Fossum – 8,06
7. Jakob Svavar Sigurðsson og Alur frá Lundum II – 7,78
8. Sigurbjörn Bárðarson og Jarl frá Mið-Fossum – 7,61
9. Eyjólfur Þorsteinsson og Klerkur frá Bjarnanesi – 7,61
Forkeppni (í þeirri röð sem keppendur komu í braut)
Hekla Katharina Kristinsdóttir og Gautrekur frá Torfastöðum – 7.07
Jón Viðar Viðarsson og Ari frá Síðu – 6,47
Viðar Ingólfsson og Stemma frá Holtsmúla – 7,37
Bylgja Gauksdóttir og Hersveinn frá Lækjarbotnum – 6,70
Sölvi Sigurðarson og Nanna frá Halldórsstöðum – 7,20
Elías Þórhallsson og Svartnir frá Miðsitju – 6,73
Erlingur Erlingsson og Tenór frá Túnsbergi – 6,10
Sævar Örn Sigurvinsson og Orka frá Þverárkoti – 6,10
Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi – 9.07
Camilla Petra Sigurðardóttir og Dreyri frá Hjaltastöðum – 6,63
Heiða Dís Fjeldsteð og Lukka frá Dúki – 6,60
Stefán Friðgeirsson og Saumur frá Syðra-Fjalli – 6,47
Hinrik Bragason og Sveigur frá Varmadal – 7,83
Sigurður Sigurðarson og Glæða frá Þjóðólfshaga – 8,27
Guðmundur Einarsson og óþekktur rauður hestur – 6,47
Þorvaldur Árni Þorvaldsson og Smyrill frá Hrísum – 7,77
Erla Guðný Gylfadóttir og Erpir frá Mið-Fossum – 7,80
Signe Bache og Trilla frá Þorkelshóli – 6,87
Siguroddur Pétursson og Hrókur frá Flugumýri II – 6,80
Eyjólfur Þorsteinsson og Klerkur frá Bjarnanesi – 7,57
Jakob Svavar Sigurðsson og Alur frá Lundum II – 7,67
Jóhann R. Skúlason og Lómur frá Langholti – 7,23
Sara Ástþórsdóttir og Díva frá Álfhólum – 8,13
Lena Zielenski og Gaumur frá Dalsholti – 7,13
Skúli Þór Jóhannsson og Urður frá Skógum – 6,50
Sigurbjörn Bárðarson og Jarl frá Mið-Fossum – 7,63
Sigurbjörn Viktorsson og Emilía frá Hólshúsum – 7,17
Arna Ýr Guðnadóttir og Þróttur frá Fróni – 7.07
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH