Glæsilegir gæðingar
Glódís Rún Sigurðardóttir nældi sér í þriðja Landsmótstitilinn á síðasta Landsmóti þegar hún sigraði barnaflokkinn í þriðja sinn á Kamban frá Húsavík. Hún mætir nú með nýjan hest í unglingaflokkinni Töru-Glóð frá Kjartansstöðum en þær eru nr. 4 á stöðulista WorldFengs. Efstur á listanum er Hafþór Hreiðar Birgisson á Ljósku frá Syðsta-Ósi og annar er Egill Már Þórsson á Sögu frá Skriðu en Egill og Saga voru í öðru sæti á síðasta Landsmóti þá í barnaflokki.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá stöðulista WorldFengs í unglingaflokki.
Stöðulisti – Unglingaflokkur
1 Hafþór Hreiðar Birgisson Ljóska frá Syðsta-Ósi 8,67 – Gæðingamót Spretts
2 Egill Már Þórsson Saga frá Skriðu 8,56 – Opin gæðingakeppni Léttir og úrtaka fyrir LM
3 Freydís Þóra Bergsdóttir Ötull frá Narfastöðum 8,56 – Úrtaka NV Sunnudagur
4 Glódís Rún Sigurðardóttir Töru-Glóð frá Kjartansstöðum 8,54 – Opið gæðingamót og úrtakaSleipnis,Ljúfs og Háfeta
5 Kristín Ellý Sigmarsdóttir Perla frá Höskuldsstöðum 8,53 – Opin gæðingakeppni Léttir og úrtaka fyrir LM
6 Bjarki Fannar Stefánsson Dúkkulísa frá Þjóðólfshaga 1 8,51 – Opið Gæðingamót Hrings
7 Hafþór Hreiðar Birgisson Villimey frá Hafnarfirði 8,51 IS2016SPR101 – Gæðingamót Spretts
8 Hrafndís Katla Elíasdóttir Stingur frá Koltursey 8,51 – Hringdu Seinni úrtaka Gæðingamót Harðar
9 Aron Freyr Sigurðsson Hlynur frá Haukatungu Syðri 1 8,47 – Úrtaka fyrir Landsmót
10 Glódís Rún Sigurðardóttir Tinni frá Kjartansstöðum 8,45 – Opið gæðingamót og úrtaka Sleipnis,Ljúfs og Háfeta
11 Thelma Dögg Tómasdóttir Taktur frá Torfunesi 8,45 – Hringdu Fyrri úrtaka gæðingamót Harðar og Grana
12 Stefanía Hrönn Stefánsdóttir Dynjandi frá Höfðaströnd 8,44 – Opið gæðingamót og úrtaka Sleipnis,Ljúfs og Háfeta
13 Ingunn Ingólfsdóttir Ljóska frá Borgareyrum 8,43 – Úrtaka fyrir Landsmót
14 Karítas Aradóttir Sómi frá Kálfsstöðum 8,43 – Úrtaka fyrir Landsmót
15 Benjamín Sandur Ingólfsson Stígur frá Halldórsstöðum 8,41 – Gæðingamót Fáks
16 Hákon Dan Ólafsson Gormur frá Garðakoti 8,41 – Gæðingamót Fáks
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH