Með Dynjanda í fararbroddi – landslið Bandaríkjanna-

  • 13. júlí 2011
  • Fréttir
Með Dynjanda í fararbroddi - landslið Bandaríkjanna-

Í Bandaríkjunum hafa verið valdir fjórir fulltrúar landsins til að keppa á HM í Austurríki.

 
Kemur það engum á óvart að silfurhafinn í samanlögðum fjórgangsgreinum, Ásta Bjarnadóttir-Covert og Dynjandi frá Dalvík er þar á lista en í viðtali við Ástu í 3. tölublaði Eiðfaxa sagðist hún stefna hátt á HM. 
„Dynjandi er betri í dag en hann var á sama tíma fyrir tveimur árum. Hann er jafnari og stöðugri og ég þekki hann líka betur. Eftir keppnina árið 2009 hef ég meiri trú á sjálfri mér.“
 
Þeir knapar og hestar sem munu fara til Austurríkis fyrir hönd Bandaríkjanna eru:
 
Chrissy Seipolt / Dreki wom Wotnshof 
Ásta D. Bjarnadóttir-Covert / Dynjandi frá Dalvík 
Anne-Marie Martin / Húni frá Torfunesi 
Rachel Ng / Kaliber frá Lækjarbotnum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link