Áríðandi tilkynning frá HÍDÍ
Endanlegar dagsetningar á samræmingarnámskeiðum Hestaíþróttadómarafélagi Íslands, HÍDÍ, verða eins og áður var auglýst sunnudaginn 21. feb. 2010 í reiðhöllinni á Blönduósi og sunnudaginn 7. mars 2010 í Ingólfshöllinni í Ölfusi (ekki 7.febrúar í Reykjavík eins og áður misritaðist).
Námsskeiðin munu hefjast klukkan 9.00 árdegis og standa fram eftir degi. Áríðandi er að hestaíþróttadómarar mæti og viðhaldi réttindum sínum.
Fyrirhugað er að hafa nýdómaranámskeið í tengslum við Reykjavíkurmeistaramótið í vor ef næg þátttaka næst. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að láta vita til HÍDÍ á
Netfangið: [email protected].
Stjórn HÍDÍ
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári