Rausnarlegur styrkur Hrossaræktar.is
Fulltrúar Hrossaræktar.is afhentu fulltrúum Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna rúmlega 2 milljóna króna styrk við litla athöfn í sólinni á Vindheimamelum í dag.
Styrkurinn er afrakstur söfnunar þar sem boðnir voru upp folatollar á Stóðhestaveislu í Ölfushöll í vetur og happdrættismiðar seldir í kjölfarið. Í máli Huldu G. Geirsdóttur kom fram að hrossaræktendur hafi tekið málefninu mjög vel og að rúmlega 50 stóðhestseigendur hafi gefið folatolla sem nýttir voru í uppboðið og happdrættið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH