Gæðingamót Harðar og Adams
Gæðingamót Harðar og Adams / úrtöku fyrir landsmót fer fram 1.-3. júní nk. Skráning verður þriðjudaginn 29. maí frá kl. 19-21 í Harðarbóli að er fram kemur í tilkynningu frá mótanefnd Harðar.
„Einnig er hægt að hringja í síma 566-8282 á sama tíma með því að gefa upp kortanúmer til greiðslu skráningargjalda.
Við skráningu verður fólk að hafa kennitölur keppenda og IS númer hesta klár.
Mótið verður haldið helgina 1.-3. júní. Skráningargjald er 3.500 kr nema í pollaflokkana þar sem skráningargjaldið er 2.000 kr.
Aðeins verður tekið við skráningum hjá skuldlausum Harðarfélögum.
Eftirfarandi flokkar verða:
- Pollar teymdir
- Pollar ríða einir
- Barnaflokkur
- Unglingaflokkur
- Ungmennaflokkur
- B-flokkur: Áhugamenn og atvinnumenn
- A-flokkur: Áhugamenn og atvinnumenn
- Tölt: Opinn flokkur
- 100 m skeið: Opinn flokkur
- Unghrossakeppni
- Einnig verður 150 m skeið og 250 m skeið ef næg þátttaka verður.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH