Heimsleikar í Berlín 2013
Heimsleikar íslenska hestsins verða haldnir í Berlín 4-11 ágúst 2012. Undirbúningur hefur gengið vel og er nú þegar búið að koma upp þeirri aðstöðu sem til þarf, en haldið verður stórt mót fyrir yngri keppendur þar í lok júlí. Þá verður reynt hvernig mótsvæðið virkar og þá gefst góður tími til að laga það sem þarf fyrir HM2013.
Það er verið að kynna mótið hér á Landsmóti og eru fulltrúar frá HM2013 með kynningarbás hér í reiðhöllinni. Sérstakt kynningarverð er á flugi, gistingu og miðum á mótið hér á meðan Landsmóti stendur, en eftir LM2012 verða gestir að greiða fullt verð.
Talsverð stemmning er hér á landi fyrir mótinu og segja aðstandendur mótsins að þetta verði glæsimót í alla staði.
Það er hægt að fá nánari upplýsingar á www.berlin2013.de eða hér í Reiðhöll Fáks.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH